top of page

Sumarnámskeið 2024

Í sumar erum við með tvennskonar námskeið. Hefðbundið Sveitanámskeið og svo Sveitanámskeið II, sem eru sjálfstæð framhaldsnámskeið fyrir þau sem hafa komið áður.


Inntak námskeiðanna er leikur, gleði og nánd við náttúruna og dýrin.
 

Á hvert námskeið komast aðeins 10 krakkar.
 

Á bænum okkar eru hestar, hænur og hænuungar, hundar og kettir. Við búum líka svo vel að hafa fjöruna í bakgarðinum og nýtum okkur það.

 
Umsjónarmaður námskeiðanna er Sjöfn Þórarinsdóttir tómstundafræðingur. Yfir vetrarmánuðina er hún starfandi æskulýðsfulltrúi í Selfosskirkju en á sumrin á GobbiGobb hug hennar allan. 

IMG_20200626_153526_edited.jpg
20190723_134436.jpg
IMG_20200610_153725.jpg
IMG_20210713_144851.jpg
IMG_20210707_214509.jpg
IMG-20190621-WA0000.jpg
18360605_464367633909402_2139763963_n.jp
IMG_20210623_112434_edited.jpg
18308625_464367663909399_1607846363_n.jp

Sveitanámskeið

Sveitanámskeiðið er svo sannarlega búið að festa sig í sessi og mörg börn líta á það sem ómissandi hluta af sumrinu að koma á Sveitanámskeið GobbiGobb.

 
Á námskeiðinu lærum við að umgangast hestana, kembum þeim og klöppum. Setjumst jafnvel á bak og förum nokkra hringi í gerðinu. 
Fjaran er líka stór partur af námskeiðinu og það er mjög vinsælt að fara niður í fjöru að veiða hornsíli eða vaða. Auk þess þá förum við í allskonar leiki og gerum eitt og annað skemmtilegt. Í lok námskeiðsins förum við í ratleik og grillum sykurpúða.

Námskeiðið eru frá mánudegi til föstudags, fyrir eða eftir hádegi.

Eftirfarandi námskeið eru í boði sumarið 2024. 

 

10. - 14. júní - frá 9:00-12:00  

18. - 21. júní - frá 13:00-16:00 - 4ra daga námskeið - - 
24. - 28. júní - frá 9:00-12:00 
   

1. - 5. júlí - frá 9:00-12:00     

15. - 19. júlí - frá 16:00-16:00 

22. - 26. júlí - frá 9:00-12:00

Verð 17.010 kr. með 10% forskráningarafslætti til 31. maí. 

Fullt verð 18.900 kr.
 

Hægt er að nýta frístundastyrk Árborgar fyrir þetta námskeið. 

10. - 14. júní 
9:00-12:00
18. - 21. júní 
13:00-16:00

4ra daga námskeið - 16.400 kr.
24. - 28. júní 
9:00-12:00
1. - 5. júlí 
9:00-12:00
15. - 19. júlí 
13:00-16:00
22. - 26. júlí 
9:00-12:00
IMG_20200616_131705.jpg
IMG_20210408_083525.jpg
IMG_20210408_095843.jpg
IMG_20200626_153526_edited.jpg

Sveitanámskeið II 
 

Sveitanámskeið II er sjálfstætt framhaldsnámskeið.  

Það byggir á sama grunni og hefðbundið sveitanámskeið; útivera, tengsl við náttúruna, og hestana eru stærstu þættir námskeiðsins. En við verðum einnig með ný verkefni og leiki fyrir krakkana að takast á við. 

Námskeiðið er frá mánudegi til föstudags.

Eftirfarandi námskeið eru í boði sumarið 2024. 

 

24. - 28. júní - frá 13:00-16:00
 

8. - 12. júlí - frá 9:00-12:00 

15. - 19. júlí - frá 9:00-12:00

 22. - 26. júlí - frá 13:00-16:00

Verð 17.010 kr. með 10% forskráningarafslætti til 31. maí. 

Fullt verð 18.900 kr.

Hægt er að nýta frístundastyrk Árborgar fyrir þetta námskeið. 

24. - 28. júní 
13:00-16:00
8. - 12. júlí 
9:00-12:00
15. - 19. júlí 
9:00-12:00
22. - 26. júlí 
13:00-16:00
IMG_20210408_084028.jpg
IMG_20200617_170640_edited.jpg
IMG_20200623_093056_edited.jpg
IMG_20200624_210344.jpg
IMG_20210628_102213_edited.jpg

Smáa letrið
 
Allir þurfa að hafa með sér létt nesti og koma hlýlega klæddir, hafgolan getur verið köld þó það sé sumar. Pollaföt eða utanyfirbuxur eru einnig hið mesta þarfaþing. Stígvél eru eðal skóbúnaður í sveitastússið og gott er að vera með buff til að nota undir reiðhjálmana. 

 

Veittur eru 10% systkinaafsláttur.

Vinsamlegast skrifið í athugasemd við skráningu ef um systkini er að ræða og þið fáið sendan greiðslulink með afslættinum. 

Ekki er hægt að samnýta afslætti.
 

Ef færri en fimm þátttakendur eru skráðir á námskeið áskilum við okkur rétt til að fella námskeiðið niður og námskeiðsgjaldið verður endurgreitt.

bottom of page