
SÍMI: 690 0728
NETFANG: info@GobbiGobb.is
Fræðslumolar GobbiGobb
Við Rjómabúið á Baugsstöðum höfum við komið upp skemmtilegri aðstöðu þar sem þú getur teygt þig yfir girðinguna, gefið hestunum gott klapp og dálítið gúmmelaði!
Í skápnum á staðnum eru sérstakar krukkur með hestanammi. En þetta er enginn venjulegur varningur – þetta eru Fræðslumolar þar sem bæði hestar og menn fá eitthvað gott:
-
Nammi fyrir hestinn: Krukkurnar innihalda gæðanammi fyrir hestana að njóta (og meltingin þeirra þolir!).
-
Nýr fróðleikur fyrir þig: Í hverri krukku leynist miði með QR-kóða. Skannaðu hann með símanum til að lesa skemmtilega og spennandi staðreynd um íslenska hestinn.
Fræðslumolarnir eru margir og mismunandi, svo það er spurning hvaða mola þú dregur í dag!
Hugsum um umhverfið: Við elskum endurvinnslu! Þú kaupir nammið og færð fróðleikinn, en krukkunum sjálfum viljum við að sé skilað aftur í skápinn þegar hestarnir eru búnir að borða, svo við getum notað þær aftur og aftur.
Verð og greiðsla
-
Verð á krukku: 1.000 kr.
-
Greiðsluupplýsingar eru á skápnum á staðnum.
Mikilvægt fyrir hestana og þig:
-
Hestar mega alls ekki fá mannamat – heldur bara Fræðslumolana.
-
Vinsamlegast farið varlega. Öll samskipti við hestana eru á eigin ábyrgð.
Komdu við á Baugsstöðum, sýndu hestunum dálítinn kærleika, skannaðu og safnaðu fróðleik!