top of page

Sumarnámskeið 2023

Í sumar erum við með tvennskonar námskeið. Hefðbundið Sveitanámskeið og svo Sveitanámskeið II, sem er framhaldsnámskeið fyrir þau sem hafa komið áður.
Inntak námskeiðanna er leikur, gleði og nánd við náttúruna og dýrin. Á hvert námskeið komast aðeins 10 krakkar.
Á bænum okkar eru hestar, hænur og hænuungar, hundar og kettir. Hver veit nema okkur verði treyst fyrir móðurlausu lambi þegar fram líða stundir og verðum þá líka með heimalning. Við búum líka svo vel að hafa fjöruna í bakgarðinum og nýtum okkur það.

 
Umsjónarmaður námskeiðanna er Sjöfn Þórarinsdóttir tómstundafræðingur. Hún hefur margra ára reynslu í að vinna með börnum á öllum allri, ýmist í skóla eða frístundastarfi. Hún var t.d. tómstundaleiðbeinandi í Ungmenna- og tómstundabúðum UMFÍ, hefur haft umsjón með leikjanámskeiði á Selfossi, var aðstoðarforstöðumaður frístundaheimiliss og hefur unnið í fleiri en einni félagsmiðstöð. Núna er hún starfandi æskulýðsfulltrúi í Selfosskirkju.

IMG_20200626_153526_edited.jpg
20190723_134436.jpg
IMG_20200610_153725.jpg
IMG_20210713_144851.jpg
IMG_20210707_214509.jpg
IMG-20190621-WA0000.jpg
18360605_464367633909402_2139763963_n.jp
IMG_20210623_112434_edited.jpg
18308625_464367663909399_1607846363_n.jp

Sveitanámskeið

Sveitanámskeiðið er svo sannarlega búið að festa sig í sessi og mörg börn líta á það sem ómissandi hluta af sumrinu að koma á Sveitanámskeið GobbiGobb.

 
Á námskeiðinu lærum við að umgangast hestana, kembum þeim og klöppum. Setjumst jafnvel á bak og förum nokkra hringi í gerðinu. 
Fjaran er líka stór partur af námskeiðinu og það er mjög vinsælt að fara niður í fjöru að veiða hornsíli eða vaða. Auk þess þá förum við í allskonar leiki og gerum eitt og annað skemmtilegt. Í lok námskeiðsins förum við í ratleik og grillum sykurpúða.

Námskeiðið eru frá mánudegi til föstudags, fyrir eða eftir hádegi.

Eftirfarandi námskeið eru í boði sumarið 2023. 

 

19. - 23. júní - frá 9:00-12:00 - Fullt - 

19. - 22. júní - frá 13:00-16:00 - 4ra daga námskeið - 16.000 kr. - 
26. - 30. júní - frá 9:00-12:00 - Fullt -

26. - 30. júní - frá 13:00-16:00 - Fullt -  

3. - 7. júlí - frá 9:00-12:00 - Fullt - 

17. - 21. júlí - frá 9:00-12:00  - Fullt - 

24. - 28. júlí - frá 9:00-12:00 - Fullt -

14. - 18. ágúst - frá 9:00-12:00 - Er að fyllast -

Verð 18.400 kr.

Hægt er að nýta frístundastyrk Árborgar fyrir þetta námskeið. 

Sveitanámskeið
Skráning
arrow&v
IMG_20200616_131705.jpg
IMG_20210408_083525.jpg
IMG_20200626_153526_edited.jpg
IMG_20210408_095843.jpg

Sveitanámskeið II 
 

Í sumar ætlum við að bjóða upp á framhaldsnámkeið fyrir þau börn sem hafa komið áður á námskeið til okkar. 

Í grunninn er þetta námskeið eins og hefðbundið sveitanámskeið. Við leggjum þó upp með að krakkarnir hafi þá þekkingu sem þeir öðluðust á sveitanámskeiðinu svo við getum byggt ofaná hana. Einnig verða nýjir leikir og ný verkefni að takast á við. 

Námskeiðið er frá mánudegi til föstudags.

Eftirfarandi dagsetningar eru í boði sumarið 2023. 

10. - 14. júlí - frá 9:00-12:00 - Fullt -

17. - 21. júlí - frá 13:00-16:00 - Fullt -

Verð 18.400 kr.

Hægt er að nýta frístundastyrk Árborgar fyrir þetta námskeið. 

Sveitanámskeið II
skráning
arrow&v
IMG_20210408_084028.jpg
IMG_20200617_170640_edited.jpg
IMG_20200623_093056_edited.jpg
IMG_20200624_210344.jpg
IMG_20210628_102213_edited.jpg

Smáa letrið
 
Allir þurfa að hafa með sér létt nesti og koma hlýlega klæddir, hafgolan getur verið köld þó það sé sumar. Pollaföt eða utanyfirbuxur eru einnig hið mesta þarfaþing. Stígvél eru eðal skóbúnaður í sveitastússið og gott er að vera með buff til að nota undir reiðhjálmana. 

 

Veittur eru 10% systkinaafsláttur.

Öryrkjar fá einnig 10% afslátt gegn staðfestingu sem senda má í tölvupósti. 

Ekki er hægt að samnýta afslætti.
 

Ef færri en fimm þátttakendur eru skráðir á námskeið áskilum við okkur rétt til að fella námskeiðið niður og námskeiðsgjaldið verður endurgreitt.

bottom of page